24.10.2007 | 07:22
Ekkert sérstakt
Góðann daginn eru ekki allir hressir þennann daginn.
Jæja þá er veikindavesenið byrjað Hugrún er lasin bæði í gær og í dag, þetta kemur alltaf fljótlega eftir að skólarnir byrja, fínar smitleiðir. En hún er það gömul að ég þarf ekki að vera frá vinnu þess vegna.
Það er mikið að gera í vinnunni því tölvan hrundi og bókunarkerfið með svo það uppgötvaðist ekki fyrr en í gær að það kemur fólk í þorp 1 í dag og við ekki byrjaðar að þrýfa, var til hálf sjö í gærkvöldi en þetta hefst nú allt. Eyrún byrjar að vinna þarna með mér í dag, vonandi að hún standi við það, krossa fingur, hún er búin að eiga erfitt undanfarið hætti í skólanum og svona.
Ég fór í saumaklúbb í gærkvöldi það var bara gaman og skemmtilegt að hittast aftur eftir sumarið og gott að borða.
Núna er maður farin að spá í fermingu í vor, sjálfsagt verður það bara hefðbundið.
Ég ætla að hætta núna hafið það gott í dag
Um bloggið
Anna Pálína Guðmundsdóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það alltaf gaman að hitta fólk og skipta aðeins um umhverfi, vonandi gengur bara vel með Eyrúni og vona að Hugrúni líði betur. Kveðja
Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 24.10.2007 kl. 08:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.